jæja jæja
fruuuuuuuuuuunsa
gerði geggjað góða súpu í gær... mmmm nammi namm
pála kom í mat til okkar og svo þegar ég fór inn að sofa þá sagði victor í gegnum svefninn "er pálrún farin?" og ég sagði bara já en hún ætlar að kíkja á okkur um helgina aftur þá sagði hann bara "gott"
enda er hún svo góð við þau, aníta vildi bara vera hjá henni í allan gærdag hehe gaaaaman að því ....
jæja ætla að fara að gera eitthvað... bæbæ
GLEÐILEGA PÁSKA
JÁ ELSKURNA Í DAG ERU PÁSKARNIR KOMNIR. ÉG VAR AÐ KOMA HEIM ÚR VINNUNNI OG ÆTLA AÐ FARA AÐ SOFA FLJÓTLEGA, FYRST ÆTLA ÉG AÐ HRINGJA Í BÖRNIN MÍN OG ÓSKA ÞEIM GLEÐILEGRA PÁSKA OG GLEÐILEGRAR PÁSKAEGGJA LEITAR! NÚ ÞAÐ ER EKKERT AÐ GERAST HJÁ MÉR NEMA AÐ ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ BJÓÐA MÉR Í MAT Á TVEIMUR STÖÐUM, GUGGA FRÆNKA VAR SVO ELSKULEG AÐ BJÓÐA MÉR OG HÚN JÓNA BÁRA, ÉG BJÓ SKO VIÐ HLIÐINA Á HENNI FYRST ÞEGAR ÉG FLUTTI HINGAÐ AUSTUR OG SVO ERU STELPURNAR OKKAR BESTU VINKONUR, SKO ÞESSAR ELDRI OG MÉR SÝNIST ALLT STEFNA Í AÐ HINAR VERÐI ÞAÐ LÍKA ;) ÉG SAGÐI ÞEIM NÚ SAMT BÁÐUM AÐ ÉG MYNDI KÍKJA Í HEIMSÓKN Í DAG ÞÓ ÉG KÆMI EKKI AÐ BORÐA HJÁ ÞEIM, EN FALLEGT SAMT AF ÞEIM AÐ BJÓÐA MÉR. Æ MÉR FINNST ÞÆR EIGI NÚ BARA AÐ FÁ AÐ BORÐA MEÐ SÍNUM FJÖLSKYLDUM OG EKKI AÐ ÉG SÉ EITTHVAÐ AÐ TROÐAST INN Á ÞAÐ! VONA AÐ ÞIÐ HAFIÐ ÞAÐ ÖLL ALVEG SÚPER GOTT Í DAG OG HEY JÁ ÉG ÆTLA AÐ NÁ Í EGGIÐ MITT NÚMER 1 OG SKRIFA INN MÁLSHÁTTINN... KANNSKI HANN SÉ EITHVAÐ AF VITI! BÖL ER BÚSKAPUR, HRYGGÐ ER HJÚSKAPUR, AUMT ER EINLÍFI OG AÐ ÖLLU ER NOKKUÐ!!! OG ÞAR HAFIÐ ÞIÐ ÞAÐ ELSKURNAR... LÁTIÐ Í YKKUR HEYRA Í DAG :*
letikast
hæ elskurnar mínar. jeminn eini hvað ég er búin að vera löt. var reyndar á næturvakt þarsíðustu nótt, fór svo út að labba með KOL í hundagöngu og hann eignaðist 4 stóra nýja vini hehe, svo þegar það var búið var farið í sturtu og pínu að lúlla en svaf ekki nema í 2 tíma. Kíkti í kaffi til Bessýjar og þegar heim var komið sýndi ég vagninn minn því ég ætla að láta konu hér í bæ fá hann. Og á meðan þetta gerðist hljóp Kolur út! ég leitaði og leitaði út um allt. svo mætti ég rannveigu á bílnum og hún hafði náð honum inn í sinn bíl hahaha. Hitti þá aðeins Anítu Rannveigu en þær fóru svo bara aftur, voru að fara eitthvað í heimsókn. En það var gott að fá aðeins að sjá hana og knúsa. Svo um kvöldið kíkti ég á Heiðar og Rögnu, horfði smá á TV með þeim og endaði með að ég geyspaði út í eitt og fór heim að sofa. Vaknaði um 8 í morgun og fór út með KOL að pissa, skreið svo upp í rúm aftur og var að vakna því að Alda María hringdi í mig og spurði hvort Aníta ætti nokkuð afmæli í dag. En það er víst 1 mánuður í það ennþá!
Skemmtileg upptalning ég veit það. En í dag ætla ég að gera eitthvað álíka, fara í göngu, þrífa, sturtu og svo kannski að nýðast á vinum og ættingjum. Aldrei farið svona oft í heimsóknir til neins, og hvað þá að vera að fara í margar heimsóknir á dag hahaha. Það er svona!
Talaði við mömmu í gær og Victor er svo alsæll í sumarbústaðnum að það er alveg æðislegt, tjalda og byggja úr stólum og púðum og teppum allan daginn nánast og enginn að skipta sér af því, og á endanum sofnaði þessi elska uppi í sófa eftir matinn kl 7 í gær., alveg úrvinda eftir alla byggingavinnuna hahaha.
Jæja. Farin að klæða mig og svona. Munið kvitteríið, það virkar góð hvatning í að nenna að skrifa annað blogg, og hver veit nema ég geti skrifað eitthvað skemmtilegt næst ;)
jaaaah salómon ef það er einhvern tíman tilefni til að fá sér sjússss
smile though your heart is aching!!! hmmm
jæja elskurnar. æ ég veit eki hvað ég á að segja. EEEEEEEN ætlaði bara að segja að okkur líður vel! ég á yndislegustu börn sem ég myndi láta lífið fyrir! og svo á kvöldi eins og þessu er alveg frábært að sitja uppi í sófa og horfa á sjónvarpið og prjóna eða hekla og hafa litla sæta kol hérna hjá mér, hann er bara yndislegur. btw eiki hauks er í tv núna, er að sjá þetta í fyrsta skipti núna, þetta er bara flott, þó hann sé ekki með sinn háralit, syngur alveg jafn vel svona dökkhærður! hvað er fólk að tuða? maður spyr sig. bla bla úr einu í annað. kids að fara í flug á föstudaginn, victor um morguninn og alda um kvöldið, fengu ekki með sömu vél :S en mamma mín er svo yndisleg að hún kemur og sækir litla strákinn minn og ætlar að dekra við hann fram yfir páska. vonandi verður eitthvað búiðað skýrast með húsnæðismál hjá okkur þegar þau koma til baka, líf og fjör elskurnar!!!! jæja ég ætla að hundskast til að prjóna aðeins meira, svo ég komist nú í þetta vesti fyrir jólin næstu hahaha svo er næst á dagskrá að hekla kjól og bóleró handa anítu rannveigu, sem verður btw hjá pabba sínum um páskana þar sem ég verð að vinna..... úff
jæja þyðir ekki að hugsa um það neitt, eeeeeeeen nú ætla ég að fara úr tölvunni.... líf og fjör!!!
lag og texti....
heyrði lag áðan sem ég hef ekki heyrt í laaaaaaaangan tíma. og mér fannst það svo fallegt og notalegt eitthvað. veit ekki í flutningi hvers það var akkúrat þetta skiptið en fallegt var það...
njótið lestursins
Smile
Smile even though its breaking
When there are clouds in the sky,
You'll get by
If you smile,
Through your fear and sorrow
Smile, and maybe tomorrow
You'll see the sun come shining through
For you
Light up your face with gladness
Hide every trace of sadness
Although a tear
May be ever so near
That's the time you must keep on trying
Smile, what's the use of crying
You'll find that life is still worthwhile
If you just smile.
sjónvarpsgláp
Varð aðeins of spennt svo ég kíkti inn á www.abc.com og kíkti hvernig þetta endar allt saman... ég veit LÚÐI
Hlakka svo til þegar litla stelpan hennar Kiddu fæðist!!!!
Hringdi í Gísla vin minn í gær, konan hans hún Hildur er að fara að eignast annað barn og er skrifuð 1.maí, svo kannski verða þær saman á fæðingadeildinni, eða Aníta fái það barn í afmælisgjöf!! hver veit
Hef ekki mikið að segja svosem... set fljótlega inn myndir af krökkunum........ bæbæ
jaaaaá sælar!!!
Alda María komin heim.
Aníta Rannveig hjá ömmu sinni og afa.
Victor að leika sér og horfa á Bjarnarból.
Fór í staffapartý á föstudaginn hjá Bessý.
Fórum í morðingjaleik.
Það var mjög skemmtilegt.
Allir héldu að ég væri morðinginn... eða 5 eða eitthvað af 16 sko!!!
Ég var ekki morðinginn.
Skemmti mér mjög vel
Eymundur er á æfingu.
Ég er að fara að baka pizzu á eftir
Hlakka mikið til að fara til útlanda í sumar!!!!
Fer í vinnuna á morgun og alla næstu viku.
Ætla að nota annað gjafabréfið sem ég fékk í afmælisgjöf á miðvikudaginn. Lúxus andlitsbað og litun og plokkun.
Næsta miðvikudag ætla ég í fótsnyrtingu.
Kolur er alltaf jafn sætur og góður.
Alltaf úti að labba og elskar að kúra hjá mér í sófanum... og mér finnst það líka alveg rosalega gott að hafa hann hjá mér.
Hef ekki heyrt í systur minni í nokkra daga, vona að allt sé í lagi hjá henni.
Sakna hennar alveg fullt.
Jæja elskurnar ég er farin að knúsa börnin mín og baka handa þeim pizzu. Endilega skrifið í kommentin það er svo gaman að vita hver er að kíkja í heimsókn.
Knús og kossar til ykkar allra.
Cilla
Bloggari hvað?
já það eru nú sennilega ekki margir jafn latir og ég að blogga.
þoli ekki:
þegar ég er að reyna að sofa á daginn (vegna næturvakta) og síminn hringir endalaust
þegar ég er þreyttt í vinnunni og er alltaf við það að sofna
langar:
að eiga fullt af peningum
borga skuldirnar mínar
fá betri laun fyrir vinnutímann minn
elska:
fjölskylduna mína
fjölskylduna mína
fjölskylduna mína
hlakka til:
að fara í partý um helgina
að fara til útlanda í sumar
þegar ég verð orðin kennari
að komast heim á eftir og knúsa fjölskylduna mína því ég sakna þeirra
*sigh* jæja best að halda áfram að vinna
túlú
